7.1.2010 19:38
Innanhússmót Heklunnar 2010

Innanhússmót Heklunnar verður haldið laugardaginn 27. febrúar n.k. Mótið hefst kl 12:00 og verður spilað í HAL 1 í Vejlby Risskov Hallen. Eftir mótið ætlum við að hittast allir og gera okkur glatt kvöld, borða saman og flippa svo eitthvað. 

Elli Joð og Kiddi munu jafnvel hrista eins og eitt stórkostlegt pöb-quiz fram úr ermunum og Hörður, Stymmi og Elvar ætla að taka Single Ladies live til að bæta upp fyrir að hafa ekki verið með í myndbandinu fræga. Verið er að reyna að trekkja að einhver aðkomulið og akkúrat núna er verið að bíða eftir svari frá Horsens og Álaborg.

Verð á mótið mun líklega vera í kringum 100 krónur á mann og er innifalið í því pizzur um kvöldið. Bjór verður síðan seldur um kvöldið fyrir 10kall eins og verið hefur.

Þeir sem hafa hugsað sér að vera með í mótinu endilega skrá sig sem fyrst. Skráningarfrestur er til 15. febrúar og fer skráning fram á spjallinu þar sem er einnig hægt að spyrja nánar útí mótið. Þegar kominn er lokafjöldi þá skoðum við hvernig liðum verður skipað, hvort menn krunki sig saman eða það verði dregið, kemur allt í ljós.

Kv. Einar





Til baka