21.2.2010 13:43
Nýr æfingavöllur Heklunnar

Stjórn SF Heklu er stolt að geta kynnt leikmönnum félagsins að tekist hefur að fá samþykki hjá Århus Kommune um nýjan æfingavöll. Gamli æfingavöllurinn var við Rundhøjskolen útí Holme og fyrir nær alla meðlimi hefur verið mikið vesen og mikill tími farið í að koma sér til og frá æfingasvæðinu.

En héreftir þurfa leikmenn engu að kvíða. Æfingavöllurinn okkar er kominn útí Hasle Skole sem er mjög miðsvæðis (nema reyndar fyrir Dóra greyið, sorrý Dóri..) og því engin afsökun lengur fyrir að mæta ekki á æfingar þar sem það tekur orðið einungis ca tíu mínútur fyrir flesta að hjóla á æfingar.

Grunnurinn að þessu var lagður síðasta sumar þar sem við æfðum nær alfarið á vellinum við Hasle Skole en þá náðum að fara hálfgerða bakdyraleið að vellinum. Núna er þetta opinberlega orðinn okkar æfingavöllur og ef allt verður eðlilegt þá verður hann það um ókomna tíð.

Þetta er gríðarleg bylting fyrir leikmenn félagsins að hafa völlinn svona miðsvæðis (eins og sást síðasta sumar) og auk þess er völlurinn hörkugóður í þokkabót, mun mun betri en ruslið við Rundhøjskolen. Ekki síður er það nokkur sigur að hafa fengið þetta samþykkt þar sem skilaboðin frá kommúnunni fyrir tæpum tveimur árum síðan hljóðuðu þannig að vonlaust væri fyrir okkur að komast meira miðsvæðis vegna gríðarlegra langra biðlista félaga um að komast nær miðbænum.

En þetta er sem sagt í höfn og vonandi höldum við vellinum um ókomna tíð. Heimavöllurinn okkar verður samt áfram við Holme Skole þar sem við munum spila áfram okkar heimaleiki. Dóri ætti að vera ánægður með það.

Með von um góða æfingasókn í sumar,
Einar



Til baka