Það var ..Bláa liðið" sem stal senunni á innanhússmóti Heklunnar sem fór fram á laugardaginn en tæplega 40 leikmenn mættu til leiks. Horsens menn drógu sig þó úr mótinu á föstudagskvöldinu og því voru einungis fimm lið sem hófu leik í Vejlby-Risskov Hallen. Leikin var tvöföld umferð og voru leikirnir átta mínútur í fyrri umferðinni en sex í þeirri seinni.
Gamlir komu nokkuð á óvart og voru með þriðja besta árangurinn eftir báðar umferðir sem þýddi að þeir áttu að spila um bronsið á móti hvíta liðinu sem endaði í fjórða sæti. Hvítir voru hinsvegar ekkert að stressa sig á hlutunum og voru komnir í sturtu þegar bronsleikurinn átti að fara fram. Gamlir lentu því sjálfkrafa í þriðja sæti og áttu það fyllilega skilið.
Liðin sem léku til úrslita voru síðan Svartir og Bláir. Svarta liðið skipuðu Davíð, Elvar, Svavar, Kalli, Ingiber, Bjarni og Óskar. Bláa liðið skipuðu þeir Einar, Hörður, Ömmi, Stebbi nýi, Bjössi, Sindri og svo átti Stymmi að vera með bláum en var meiddur svo Leví kom í hans stað.
Úrslitaleikurinn var ekta úrslitaleikur, menn tóku enga sénsa og einbeittu sér fyrst og fremst að vörninni. Það var ekki fyrr en einhverjar tvær mínútur voru eftir að fyrsta markið leit dagsins ljós og voru það bláir sem skoruðu það. Svartir hófu þá að sækja og settu mikla pressu á bláa síðustu tvær mínúturnar en tókst ekki að jafna leikinn.
Styrmir Jóhannsson, annars ágætur dómari mótsins, reyndi þó allt til að láta Svarta liðið jafna leikinn en hann beitti sömu taktík og dómararnir í leik Íslands og Austurríkis á EM í handbolta gerðu. Leiktíminn var stoppaður án afláts síðustu tvær mínúturnar, bæði þegar var dæmd aukaspyrna á Bláa eða boltinn fór útaf. Lá við að fyrst hefði tíminn verið stoppaður og svo dæmd aukaspyrna svo slæmt var þetta orðið.
En þrátt fyrir þetta mikla mótlæti í lokin þá stóðust Bláir mikla og erfiða pressu og dómaraskandal og því óhætt að segja að þeir hafi verið verðskuldaðir sigurvegarar innanhússmóts Heklunnar árið 2010. Fengu þeir út að borða á Bones í tilefni þess. Svartir fengu kassa af bjór fyrir annað sætið og Gamlir fengu bjór og banana fyrir þriðja sætið. Kiddi gamli fékk svo bjór fyrir mark mótsins en hann setti hann slánna inn upp við vinkilinn einhversstaðar langt utanaf velli, glæsilegt mark hjá gamla.
Um kvöldið var síðan frábært stuð á Herredsvej þar sem pizzurnar og bjórinn runnu ljúflega ofan í menn. Pizzusafi, olía og "chillí villí" voru þó eilítið að stríða mönnum en allt hófst þetta að lokum. Hápunktur kvöldsins var síðan pöb-quizið hjá Ella Joð og Kidda sem var vel heppnað eins og alltaf. Liðin í innimótinu röðuðu sér einfaldlega aftur saman og hófst svo barátta uppá líf og dauða.
Gamlir ætluðu sér stig fyrir Jack Nicholson/Heith Ledger og Jókerinn en iPhone kom í veg fyrir að það stig varð að veruleika með því að kíkja á imdb. Dóri og Hvíta liðið voru líka frakkir. Vildu meina að sonur Alex Ferguson væri þjálfari Preston Athletic í skosku utandeildinni og svöruðu einfaldlega "Preston" á blaðið sitt. Svo þegar þeir áttuðu sig á mistökunum , að sonur Lexa væri í raun þjálfari Preston North End, þá sögðu þeir að þeir meintu að sjálfsögðu Preston North End og fengu að ég held rétt fyrir það að lokum hjá dómurunum. Enn einn dómaraskandallinn.
Og þrátt fyrir harðar atlögur úr öllum áttum og misjafnar ákvarðanir dómaranna þá fór það svo að Bláir sigruðu einnig pöb-quizið og sönnuðu þar endanlega hverjir voru hinir sönnu meistarar. Það er ekki hægt annað en að taka hattinn ofan fyrir Bláa liðinu, þvílík barátta, karakter og sigurvilji hefur ekki sést í langan tíma innan Heklunnar. Setur þetta mönnum vonandi gott fordæmi fyrir tímabilið.
Með sigurkveðju,
Einar
P.s. myndir koma fljótlega af mótinu og kvöldinu. Því miður ekki margar af mótinu þar sem myndavélin sem átti að nota var ónýt þegar á hólminn en það voru nokkrar teknar á síma....