Finnst þér gaman að skrifa greinar, pistla og taka myndir? Ertu jafnvel góður í öllu þessu? Okkur langar að heyra aðeins hljóðið í mannskapnum varðandi það að stofna ritnefnd innan Heklunnar. Sú nefnd myndi hafa það aðalhlutverk að skrifa pistla og greinar á síðuna og jafnvel að skrifa fréttabréf sem sent yrði út til meðlima með reglulegu millibili.
Ritnefndin hefði t.d. það hlutverk að skrifa pistla eftir leiki, Heklukvöld svo sem póker-, pöb-quiz kvöld og annað sem okkur dettur í hug að gera. Einnig mætti skrifa greinar á síðuna um hvað sem mönnum dettur í hug, því meiri skrif því betra að sjálfsögðu.
Einnig leitum við að dugmiklum manni/mönnum sem hafa áhuga á að sjá um að smella af myndum á leikjum og viðburðum Heklunnar og sjá svo um að koma þeim á vefstjóra.
Ef einhverjir hafa áhuga á að koma meira að starfi félagsins á þennan hátt þá endilega hafið samband á paradisareyjan@gmail.com eða í síma 53610206 eða 60127357.
Heklukveðja,
Einar