15.3.2010 18:21
Æfing á föstudaginn - leikur á sunnudaginn

Eins og menn hafa væntanlega tekið eftir þá hefur ekkert verið hægt að æfa úti sökum þess að allir vellir hafa verið þaktir snjó og klaka. En þar sem vorið virðist vera að detta inn þá stefnum við að því að hafa fyrstu útiæfinguna á föstudaginn kemur á malarvellinum útí Christiansbjerg svo fremi sem hann verði tilbúinn.

Æfingin hefst 16:45 og eigum við tíma til 18:15. Við megum þó ekki keyra okkur alveg í kaf þar sem (vonandi) fyrsti æfingaleikur tímabilsins fer fram á sunnudaginn en eins og menn hafa einnig tekið eftir þá hafa alir æfingaleikirnir hingað til frestast.

Leikið verður gegn tyrkjunum í ACFC og hefst leikurinn kl 14:00 við Åbyhøj Stadion. Elvar verður í bandi við þá leikmenn sem eiga að mæta svo veriði með símana klára um helgina !

Ef æfingin eða leikurinn fellur niður þá látum við að sjálfsögðu vita.

Heklukveðja,
Einar



Til baka