25.5.2010 12:34
Leikjapistill 3b. Ekstra Bladet Cup: SF Hekla (S4) - TMG (S3)

Heklan tók sig til í tilefni þess að Grindarvíkur stálið sé að verða faðir og jarðaði TMG í  æsispennandi bikarleik. Þetta lið sem er fyrrverandi og gott ef ekki núverandi meistari í einhverjum bikarnum átti samkvæmt öllu að taka Hekluna í kynnisferð í bakaríið.

Byrjunarliðið var einkar glæsilegt með Sindra fremstan meðal jafningja í markinu, eða er það aftastan meðal jafningja, hann var alla vega í markinu. Vörnin samanstóð af Júpiter (Einar) og Ömma í miðvörðunum og bakverðirnir voru Dressman módelin Villi og Krissi. Á miðjunni voru það Dóri og Hansi og á köntunum byrjuðu Hjalti hinn duglegi og Hörður Glerökkli. Upp á toppi voru Tommi og Maggi.

Dóri hélt svakalega peppræðu fyrir leik og menn fóru trylltir inn í leikinn. Aldrei fyrr hefur lið í neðri deild byrjaði gegn liði úr efri deild með sína bestu menn á bekknum en einhvern tímann er allt fyrst og á bekknum voru Stymmi (John O´Shea Heklunnar), Doktorinn (Óskar) og Davíð. Davíð er svo mikil prímadonna í Hekluliðinu að ekki sé nóg með að hann mæti of seint heldur þarf að senda bílstjóra eftir honum til að halda honum góðum, en það átti heldur betur eftir að borga sig.

Leikurinn þróaðist þannig að Heklan yfirspilaði TMG gjörsamlega og komst yfir með marki frá Júpiter en einhverjar raddir voru uppi um að því hefði verið stolið frá Herði. Davíð kom svo Heklunni í tveggja marka forskot rétt áður en dómari leiksins flautaði til hálfleiks. Í kjölfar fengu Heklumenn urmull af færum sem ekki tókst að nýta með TMG tókst einhvern vegin að skora mark og minnka muninn í 2-1, en eftir glórulausa tæklingu Júpiters fékk hann gult spjald og við það spýttu TMG menn í lófana og tókst að jafna leikinn.

Tæklingin var glórulaus að því leyti að hún var aldrei nálægt manninu og skilja menn enn ekki hvað Júpiter gekk til með þessum tilburðum. Þetta þýddi að leikurinn þurfti að fara í framlengingu, 2 sinnum 10 mín. Í framlenginunni gerðist fátt markvert fyrir utan að Júpiter tók bræðikast eftir leiðindi í teignum og uppskar rautt spjald í kjölfarið, frá dómaranum sem stóð sig með stakri prýði. En Heklumönnum tókst að halda út restina af framlengingunni og leikurinn fór í vító.

Þá voru góð ráð ódýr enda býr Heklan yfir miklum vítabana eina vandamálið var að velja menn í vítin og valið varð Maggi, Hjalti, Davíð, Hansi og svo vantaði fimmta manninn stóð þá ekki upp maðurinn með stáltaugarnar sem gengur undir nafninu Tommi. Vítaspyrnukeppnin byrjaði á því að þeir skoruðu úr sínu víti þó Sindri væri vel með í markinu. Maggi var næstur og skoraði hann af miklu öryggi enda hefur hann aldrei klúðrað víti, að eigin sögn. TMG skoraði úr næsta víti og aftur var Sindri vel með á nótunum, óheppinn að verja ekki.

Skorað var úr öllum spyrnum þangað til að það koma að lokaspyrnu TMG þar sem að Sindri sýndi að þó að hann sé stuttur í annan endann gat hann skutlað sér niður í hornið og varið örugglega annars góða vítaspyrnu TMG manna. Tommi fékk þá séns á að tryggja Heklunni sigurinn með að skora úr fimmtu og síðustu spyrnu Heklunnar og hann stóð svo sannarlega fyrir sínu og þrumaði tuðrunni í hornið og allt ætlaði um koll að keyra í Holme Skole. Glæsilegur sigur Heklunnar á sterklu liði TMG var staðreynd.

Allir leikmenn stóðu sig með prýði og andinn í Hekluliðinu stórkostlegur og eftir leik var Sindri kosinn maður leiksins fyrir hetjulega framgöngu. Þessi sigur þýðir að Heklan þarf að ferðast norður yfir Jótland til að mæta liði í næstu umferð, og hvetjum við liðsmenn sem ekki verða í hóp og fleiri aðstandendur til að koma á leikinn og styðju Hekluna í þessu bikarævintýri.

Kveðja,
Víðir Sig



Til baka