22.6.2010 20:55
Hekluslútt á laugardag!

Sælir piltar

Eins og planað var þá verður Hekluslúttið á laugardaginn næstkomandi. Planað var að hafa herlegheitin í einhverjum fællesal hjá einhverjum jottanum en það fór allt í rugl og verður hann nú haldinn á Herningvej 1 á fjórðu hæð í íbúð 9 (heima hjá mér).
Planið er að starta þessu um 17 leytið, fíra í grillunum og bomba nokkrum köldum ofan í sig. Ekkert dresscode, bara casual svo öllum líður vel (það eiga ekki allir jakkafatajakka og þ.a.l væri leiðinlegt fyrir þann aðila að vera eins og álfur útúr hól á meðan allir eru uppdressaðir)(grín)(vá er ég súr)))

Basic:

1. Bannað að pissa á glugga.
2. Banna að hrækja á gólf.
3. Ekki pissa út fyrir.
4.Hlýða húsbónda í einu og öllu.

Allir velkomnir og ég vona bara að sjá sem flesta.

Kv. Elli Joð



Til baka