7.1.2010 19:32
Æfingamót

Þá styttist óðum í komandi tímabil en flautað verður til leiks þann 11. apríl n.k. Til að vera í sem besta standinu fyrir mótið og eins bara til að fá sem flesta leiki þá ætlum við að taka þátt í æfingamóti sem smá upphitun. Mótið hefst þann 20. febrúar og verða spilaðir að mig minnir fimm leikir. Nánar verður fjallað um þessa æfingaleiki síðar eða þegar okkur hafa borist allar upplýsingar um mótið, leikjaniðurröðun og slíkt.