
| Leikjapistlar 2007 | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Síðasti leikur tímabilsins fór fram undir mjög svo skringilegum kringumstæðum og verður sunnudagsins 14. október ekki minnst fyrir fallegasta fótboltaleik í heimi, en kannski er hann einn sá eftirminnilegasti í Heklusögunni (allavega í minni Heklusögu). Leikmenn mættu ferskir um ellefu leytið við Holme skole. Formaðurinn og Steini þurftu reyndar að taka leigubíl og skildi Elvar þjálfari ekkert í leigubílaveseni formannsins. ,,Ætli konan hafi ekki bara sagt nei þegar hann bað hana um bílinn," hafði þjálfarinn á orði. En leigubíllinn var í raun bara leigubílarúntur þar sem Tommi þurfti að sækja nokkra misferska Heklumenn á bílnum. Elli J mætti svo slakur kl 11:20 en það var þó í lagi þar sem völlurinn hafði verið tvíbókaður, fjögur lið mætt á svæðið og allt í upplausn. Niðurstaðan var sú að leikurinn yrði spilaður á æfingasvæði Heklunnar við Rundhojskolen en þar hafði grasið ekki verið slegið í hálft ár, netin voru rifin í mörkum og völlurinn ekki einu sinni merktur. En Heklumenn harðir sem stál ætluðu sér ekki að láta það eyðileggja leikinn. Formaðurinn þrammaði að inngangnum en ekkert gerðist. Búið var að skipta um skrá þannig að menn neyddust til að dressa sig upp úti við en það var heldur ekkert til að gera veður út af enda gott veður. Leikurinn byrjaði fjörlega og greinilegt að Heklumenn ætluðu að selja sig dýrt. Fengum við nokkur ágætis færi og amk eitt dauðafæri en Stymma brást bogalistin fyrir framan markið. Fyrri hálfleikurinn einkenndist af miðjuþófi, Heklan var þó meira með boltann en spilið náði engan veginn að fljóta nógu vel þannig að lítið varð um opin færi. Í síðari hálfleik tók Heklan svo fljótlega öll völd á vellinum en menn voru of mikið að klappa boltanum og reyna að krönglast upp þétta miðjuna þannig að boltinn rúllaði ekki mikið og líkt og í fyrri hálfleik gekk illa að skapa færi en þó fengum við nokkur sem hefðu átt að klára leikinn. Hornspyrnur og aukaspyrnur nýttust einnig mjög illa en töluvert var af þeim í leiknum og það munar um minna. Greinilegt var á liði ASB að þeir ætluðu sér jafntefli alveg frá byrjun. Þeir lágu aftarlega og beittu skyndisóknum en vörnin sá við öllum þeirra sóknartilraunum, nokkuð auðveldlega má segja. Þeim tókst að lokum ætlunarverk sitt, 0-0 jafntefli, mjög mjög ósanngjarnt svo ekki sé meira sagt enda viðurkenndu leikmenn ASB það flestir í leikslok. Nokkur góð færi fóru forgörðum hjá Heklunni ásamt því að vera netað um tvær vítaspyrnur. Því fór sem fór og Heklan því miður áfram í fimmtu seríu en gerir eflaust mikla og enn betri atlögu á næsta tímabili að fara upp um deild enda betri knattspyrnulið en flest liðin í seríu fimm. Það er ótækt annað en að minnast á dómarann. Hann var í einu orði sagt lélegasti dómari sem ég hef á ævinni séð og skömm fyrir dómarastéttina að kalla manninn dómara. 40 ára Tyrkja/Indverja blendingur og dvergur í ofanálag með hvítgráan hárlubbann og stór kassalaga svört gleraugu hefði fremur átt heima sem gestafígúra í Futurama heldur en dómari í knattspyrnuleik. Hann hafði líklegast aldrei litið knattspyrnuleik augum greyið enda sleppti hann tveimur augljósum vítaspyrnum sem Heklan átti að fá auk þess að dæma aukaspyrnu á leikmenn Heklu í hvert og eitt einasta skipti sem við unnum návígi við ASB menn og gilti þá engu hvort það var tækling, öxl í öxl eða við blésum á þá. Þetta fór líka þokkalega í skapið á mönnum og fékk Elli sáli (er hann í alvöru í sálfræði?) að líta tvö gul sem jafngiltu því að hann var útaf í heilar 20 mínútur og Heklan á meðan einum færri. Ég hélt í fúlustu alvöru að Elli myndi berja fígúruna en það gekk sem betur fer ekki svo langt. Óli fékk einnig gult fyrir að segja "for helvede dommer" og svo fékk Sindri gult fyrir einhverja skrautlegustu tæklingu sunnan Íslands og var heppinn að hitta ekki löppina á sóknarmanni ASB sem hefðu ugglaust farið í tvennt ef Sindri hefði hitt hann. Þannig að allt í allt voru Heklumenn reknir útaf í 40 mínútur og liðið því einum færri en 10 mínútur af þessum tíma var liðið tveimur færri. Það hafði líka auðvitað sín áhrif á spilamennskuna. Ef liðið og leikmenn hafa virkilegan metnað til að gera betur og fara upp um deild og bæta sig þá verða ákveðnir hlutir að breytast og er hægt að læra af þeim nokkrum eftir þennan leik, aðallega tveimur. Í fyrsta lagi mæta menn ekki þunnir í jafn mikilvægan leik og þennan og í öðru lagi þá verða menn að halda haus í 90 mínútur, sérstaklega í krítískum leikjum sem þessum. Dómarinn var auðvitað enginn dómari en menn verða að halda ró sinni og einbeitingu. Annars langar mig að þakka
Heklumönnum fyrir að hafa fengið að taka þátt í æfingum og þessum
tveimur síðustu leikjum með ykkur og mínum fyrstu fótboltaleikjum í 2
ár og 3 mánuði. Þetta er frábær hópur og manni þykir strax orðið vænt
um félagið og félagsskapinn, ég er t.d. alveg brjálaður yfir því að
liðið hafi ekki farið upp þrátt fyrir að ég hafi einungis spilað tvo
leiki. En nú er það bara hífandi fyllerí á árshátíðinni á laugardaginn,
það verður án efa frábær skemmtun. Pistilinn skrifaði: Einar Sig.
Dagurinn er föstudagurinn hinn 5. október. Rúmlega 16:30 eru flestir mættir á svæðið á den amerikanske fodboldbane í Viby. Keeperinn tók góðan smók inní klefa rétt áður en menn hlupu út til upphitunar, svona rétt til að kveikja í mönnum og það virkaði greinilega svona rétt til að byrja með í leiknum. Leikurinn hófst stundvíslega klukkan 17:30 og voru nokkrir að skila sér á staðinn rétt fyrir flaut. Heklumenn voru sterkari á fyrstu 10-15 mínútum leiksins. Boltinn rúllaði vel og liðið náði nokkrum góðum sóknum. Eftir það náði lið Prugelknabe yfirhöndinni sem var satt best að segja eingöngu vegna okkar eigin aulaskapar. Boltinn hætti að rúlla og menn ætluðu annaðhvort að taka allar sendingar í fyrsta "touchi", sem völlurinn bauð engan veginn uppá, eða að leika á svona u.þ.b. 4-5 menn áður en átti að senda boltann. Við þetta fengum við ansi mörg skyndiupphlaup á okkur sem við á köflum áttum í stökustu vandræðum með. Fyrsta markið leit dagsins ljós svona ca um miðjan fyrri hálfleikinn. Stymmi tók þá innkast aðeins fyrir framan miðjan okkar vallarhelming og kastaði löngum bolta inná miðjuna. Þar misstum við boltann á stórhættulegum stað, þeir sendu langan stungubolta á fjær og þrátt fyrir að vera ógnarhraðir þá náðu hvorki Elli J né Steini leikmanni Prugelknabe sem komst einn í gegn og setti boltann örugglega í netið. Heklupeyjar héldu áfram að spila óskynsamlega eftir markið sem var eiginlega grátlegt þar sem greinilegt var frá fyrstu mínútu að Hekla var mun betra liðið. Prugelknabe skoraði fljótlega annað mark eftir skyndiupphlaup og aftur eftir að missa boltann illa og einhvern klaufagang í vörninni. Við þetta kviknaði aðeins á mönnum og uppskárum við vítaspyrnu eftir að brotið var á Póker-Magga. Hann tók vítið sjálfur en hefur líklegast verið með hugann of mikið við pókerborðið sem hann talaði um fyrir leikinn, boltinn í utanverða stöngina og framhjá. Staðan í hálfleik 2-0 fyrir liðið með leiðinlega nafnið og Heklumenn verulega ósáttir við sjálfa sig þrátt fyrir að hafa átt ágæta sénsa til að skora. Leikmenn bitu þó í skjaldarrendur í síðari hálfleik þar sem liðið varðist og sótti af miklum eldmóð eins og Heklumönnum einum er lagið. Hekla fékk fljótlega aðra vítaspyrnu eftir að brotið var á Magga, góður sprettur hjá honum. Hjalti tók vítið að þessu sinni og lagði boltann örugglega niðrí vinstra hornið. Staðan 2-1. Heklumenn héldu áfram að sækja og sækja en ótrúlegur klaufagangur í sambland við óheppni kom í veg fyrir að við nýttum þann fjölda færa sem við fengum. Hjalti og Atli fengu góða sénsa sem og fleiri en annaðhvort voru menn of lengi að klára skotin eða varnarmenn og markmaður björguðu á línu. Einar átti að nýta allavega eitt af sínum skallafærum, einn fór í slá og einu sinni bjargað nánast á línu, aulaskapur. Eitthvað hlaut þó að gefa undan að lokum og um miðjan seinni hálfleik náðu Heklumenn loks að jafna og var Stefán þar að verki eftir góða sókn. Heklan hélt áfram að sækja og sækja og tóku menn smá séns með varnarleikinn og munaði minnstu allavega tvisvar að leikmenn Prugel kæmust í gegn. Þegar 10. mín voru til leiksloka gerði Einar sig sekan um heimskulegt brot. Leikmaður Prugelknabe sparkaði þá í hann eftir einhverja smá baráttu og Einar brást við með því að hrinda ljósabekkjabrúna tappanum (á ættir að rekja á Selfoss) og auðvitað sá dómarinn bara hrindinguna en ekki sparkið. Einar fékk því gult og útaf í 10 mín sem þýddi að Heklan var einum færri út leikinn. Örskömmu síðar skora þeir svo ógeðslega svekkjandi sigurmark. Sending inní teiginn og einn leikmaður þeirra nær að skalla að marki þrátt fyrir að tveir menn séu í honum. Boltinn í þvílíkan banana og dettur niður í fjærhornið. 3-2 lokastaðan. Auðvitað mjög svekkjandi að tapa eftir að hafa náð að jafna og yfirspilað andstæðingana í seinni hálfleik. En þetta skrifast algerlega á okkar eigin klaufaskap, bæði mörkin sem við fengum á okkur og eins og nýta ekki færin betur. Samt góður karakter að koma til baka og lið Heklu sýndi greinilega í þessum leik að það er betra fótboltalið en þetta Prugelknabe Kugelsgabe. En það eru mörkin og stigin sem telja og nú er bara að vinna síðasta leikinn og tryggja sætið í fjórðu seríu. Kom så Hekla ! Þetta var fyrsti leikurinn minn með
Heklunni og ég vill bara þakka fyrir mig. Að fá þann heiður að spila
fyrsta leikinn sinn, taka svo búningana og líka skrifa pistilinn, ég
hefði ekki getað beðið um meira :) Pistilinn skrifaði: Einar Sig.
Flottur dagur í Hólminum. Klikkuðu sandnegrarnir að koma í heimsókn. Félaginn úr 7-11 á flautunni, gerist ekki betra. Meira að segja eftirlitmaður frá JBU var mættur á svæðið til að taka út þennan fallega bolta sem spilaður er í seríu 5-1. Jæja, Heklan var mætt á svæðið með nokkuð sterkt lið og kannski í aðeins betra formi en í síðasta leik á móti þessu liði. Við vorum alla vega staðráðnir í því að ná fínum úrslitum á móti toppliði riðilsins, sem hafði rúllað yfir öll lið nema okkur, 2-2 jafntefli var þá staðreynd í byrjun ágúst eins og menn eflaust muna. Leikurinn byrjar og við liggjum til baka þar sem við vitum alveg hvað þetta lið getur, þetta eru helv.... eyðimerkurljón í fínu formi og eins og hefur komið fram áður, kolklikkaðir. Þeir sóttu fast að okkur og á 6 mínútu ca. uppskáru þeir mark þegar ágætis vinstrifótarleikmaður þeirra hasle manna (annan tveggja hvítra manna í liðinu) spólaði sig fram hjá kantaranum okkar, síðan bakverðinum og hamraði hann yfir risann okkar í markinu, 1-0 Hasle. Jújú, við vissum að þetta ætti eftir að vera erfitt, sérstaklega þegar þeir ná að skora svona snemma í leiknum. En engu að síður vorum við að fá helling af færum, þeir spiluðu mjög hátt upp á vellinum sem gaf okkur gott færi á að fá stungusendingar inn á senterana. Við reyndum það margoft og oftar en ekki flautaði 7-11 rangstöðu á okkur, rétt fyrir sér í 70% tilvika, ekki meira. En við urðum bara að vera rólegir og bíða, þetta lá í loftinu hjá okkur. Undirritaður man ekki alveg hvort kom á undan en engu að síður mun ég rita þetta eftirfarandi: Við fengum aukaspyrnu rétt fyrir utan teig Hasle manna, Hjalti lagðist að boltanum, mundaði fótinn og setti hann síðan fasta með jörðinni inn á teiginn þar sem Tarzan kom á sveiflunni og hamraði hann í netið, fyrsta mark skáldsins frá fagraskógi staðreynd. 1-1. Þarna var leikurinn aðeins að opnast, Ömmi stakk einum bolta inn á Davíð eftir að hafa tekið boltann af einhverjum ljótum gaur, en senterinn var ekki alveg búinn að stilla miðið og setti hann framhjá einn á móti markmanni. Hasle sótti og sótti, gerðist ekkert, vörnin stóð sína pliggt mjööög vel, Ömmi og Elli J í miðvörðunum og Andri og Don Tomasini í bakvörðunum, með risann hann Steina á bakvið sig í rammanum. Jæja, boltinn vinnst á hægri kantinum, berst síðan hár fyrir þar sem Atli reynir að koma honum fyrir en hann fer í hönd eins manna Hasle og við uppskerum víti. Elli captain skellir sér á punktinn, 2-1 Hekla. Þrem mínútum síðar er ekkert merkilegt að gerast, Hasle menn orðnir frekar pirraðir, Hjalti tekur innkast við hornfána kameldýranna, sendir á Davíð, fær hann aftur, sendir hann fyrir á Atla sem með einhverjum ólýsanlegum hætti kemur honum út í teiginn þar sem Jane kemur og hamrar hann öðru sinni í netið í leiknum, annað mark skáldsins staðreynd, 3-1 Hekla. Áður en að hálfleikurinn er úti tekur Elli aukaspyrnu fljótt og Davíð fær stunguna inn, og setur hann frmahjá markamanninum, 4-1 Hekla. Allt að verða vitlaust hjá Hasle. Seinni hálfleikurinn var frekar bragðlaus, Hasle menn voru desperate í að ná að skora, sóttu mjöööög mikið á okkur og náðu að uppskera eitt kvikindi 4-2. Við vorum ekki að búa til mikið, lítið að gerast fram á við, senterinn var eitthvað orðinn þreyttur enda hálfveikur, farinn að kvarta eitthvað og bað um skiptingu. Hasle hélt áfram að sækja og voru að fá fín færi en ekki alveg að nýta þau. En svo náður þeir að setja 2 kvikindi á mjög skömmum tíma, fyrst eitthvað vesen í vörninni, og svo beint úr aukaspyrnu þar sem Steini reyndi að ná til boltans en spólaði bara á gervisgrasskónum sem hann var í þar sem takkaskórnir eru enn í Horsens á kaffi Koks, 4-4. En Maggi var eitthvað orðinn þreyttur þarna fram á við og bað um skiptinu, inn kom Davíð aftur eftir að hafa tjáð þjálfaranum að hann væri búinn. En aðeins 3 mínútum eftir að hann kom inn, fékk hann klassa sendingu inn fyrir frá Hjalta, hann sér markmanninn koma á blastinu, dregur boltann aðeins og lætur markmanninn fella sig, aukaspyrna rétt fyirr utan teig vinstra megin. Markmaðurinn útaf í 10 mín. en bara 9 mín eftir af leiknum, smá séns fyrir Hekluna. Davíð fer sjálfur á boltann og setur hann fastan með jörðinni, beint í markið, 5-4. Síðan héldu Hasle menn áfram að sækja af örvæntingu og opnaðist þá meira uppi á topp, sem var til þess að enn ein stungan leit dagsins ljós, Davíð á sprettinum, tekur markmanninn og eitt varnarbuff (25 kg) og setur hann í netið, 6-4 Hekla. Halse menn orðnir frekar tæpir en ekkert að ganga upp hjá þeim, 1 og hálf eftir, þeir fá horn, markmaðurinn hleypur inn í teig, ekkert gerist, boltinn berst út á Davíð sem var búinn að koma sér fyrir á kantinum, hliðarlínan öskrar eins og hún leggur sig: Enginn í marki, SKJÓTTU!!!! Davíð tók sig til og skaut kvikindinu beint í markið rétt við miðlínuna, 7-4 SF Hekla. End Game! Mjög góður sigur hjá okkur í Heklunni, menn voru að berjast fyrir hvern annan, góður karakter og sætt að vera ósigraðir á móti toppliði riðilsins. Pistilinn skrifaði: Davíð Ingi
Fallegur dagur, nei! Rok og frekar kalt, má segja að haustið sé komið. Menn voru enn að vinna, duttu inn ca. 10 mín. Í leik. Við röltum upp á völlinn hjá þessum klikkuðu brössum (að við héldum). Addi var búinn að segja okkur frá því að Pertobras væri Brasilíska olíufélagið og þetta hlytu bara að vera einhverjir Brassar. Við komum upp á völl, ekkert rok lengur, leit bara ágætlega vel út völlurinn, sko grasið það er að segja. Annað má nú segja um merkingar vallarins, hann var svona 90x40x3x1x2x1x4 ca. Maður gat rekið boltann upp með kantinum og svo allt í einu ertu komin útaf vellinum, en nokkrum metrum lengra ertu kominn aftur inn á hann, gefið að þú hafir hlaupið í beinni línu. En að leiknum, við Heklunnar menn byrjuðum á því að liggja aðeins og skoða hvað hitt liðið gæti, sem kom svo í ljós að þeir gátu ekki rassgat. Við sóttum helling á þá í fyrri hálfleiknum og fengum fín færi en inn vildi boltinn ekki. Það var svo þannig með málavexti að Petrobras átti eins og eitt stk. sókn sem ekkert varð úr, þjálfarinn hirti boltann af tánum á þeim, sendi á Hjalta sem stakk honum inn á eldfljótan framherja okkar Heklu manna sem setti hann auðveldlega framhjá markmanninum sem stóð eiginlega við hliðina á markinu í stað miðjunnar. 1-0 SFHekla. Ekki löngu seinni vorum við eitthvað að vandræðast við skemmtilega máluðu hliðarlínuna og boltinn barst eitthvað til einhvers hnakka í hinu liðinu sem tók uppá því að skjóta frá ca. miðlínunni, margir héldu að þetta skot mundi nú ekki rata þangað sem því var ætlað en það gerði það engu að síður, þar sem Steini (var by the way í markinu) var langt úti við teighornið ca.8 metrum frá markinu fékk hann yfir sig. 1-1, mjöööög óverðskuldað. Svo svona um það bil 5 mín. seinna var eitthvað miðjuþóf og boltinn berst til Hjalta, hann sér Stymma og ætlaði að senda hann inn á hann en boltinn var bara ekki alveg nógu fastur en fór engu að síður í gegnum Stymma og tvo varnarmenn Dynamo og þaðan til Davíðs sem enn og aftur var einn á auðum sjó og setti boltann framhjá kvikindinu í markinu. 2-1 SF Hekla. Hálfleikur! Við í Heklunni byrjuðum seinni hálfleikinn af miklum krafti, fengum mikið af færum en inn vildi blaðran ekki. Það var nú ekki mikið að gerast til baka þar sem Ömmi og Össi stóðu vaktina í miðvörðunum mjög vel. Síðan kom Steini inn í bakvörðinn, tók einn á, sendi á miðjuna, fékk hann aftur, sendi hann á centerinn, fékk síðan stungu inn, var kominn einn á móti markmanninum, ætlaði að hamra hann í þaknetið en endaði einhver staðar uppi í Holmeskole í staðinn. Bölvaði því síðan að menn væru alltaf að segja honum að nota vinstri. En alla vega við fengum helling af færum til að klára þennan leik, vorum að spila magnaðan bolta, mikil leikgleði var hjá Heklunni og var það því eins og þruma og heiðskíru þegar Petrobras mönnum tókst að drulla inn einu marki þegar 2 mín voru eftir. Við náðum ekki að hreinsa eftir horn og einhver plebbi setti tánna í blöðruna. 2-2, lokatölur!!!!! Súrt að missa þennan leik í jafntefli. Pistilinn skrifaði: Davíð Ingi
Leikið
var á gamla heimavellinum okkur úti í Viby gegn skólafélögum nokkra
heklumanna og ekki var það gaman. Komumst varla yfir miðju fyrstu 20
mín en þá skoruðu við algjörlega gegn gangi leiksins og var þar Styrmir
á ferð, 0-1 . Stuttu seinna náðu þeir að jafna eftir smá pressu 1-1. Á
30 mín fá þeir gefins vítaspyrnu sem var varin. Hjalti kom okkur svo
yfir 1-2 eftir bruðl fyrir framan vítateig ASB manna.
Heklumenn mættu ferskir, misferskir þó, til leiks á laugardaginn síðasta þegar þeir tókust á við svipupiltana (nafnið Prügelknabe er þýska yfir dreng sem sleginn er með svipu!?) í Prügelknabe IK . Þeir voru reyndar ekkert í neinni bondage stemmingu og það kom á daginn að þetta voru bara hinir frambærilegustu fótboltamenn. Heklan naut liðsinnis Gaua B. sem ekki hafði spilað í lengri tíma fyrir Hekluna, og það sem meira er, ekki unnið með Heklunni í enn lengri tíma. En örlögin er gerð til að storka þeim og vorum við handvissir um að sigur myndi loksins vinnast með þennan fyrrverandi þjálfara liðsins innanborðs. Leikurinn var flautaður á og Heklumenn byrjuðu vel. Voru léttleikandi og þéttir. En Prügelknabe IK náði hægt og rólega yfirhöndinni og það lá nokkuð á okkar mönnum í fyrri hálfleik. En liðið varðist vel og fengu aðstæðingarnir ekki mörg góð færi þrátt fyrir að þeir væru talsvert meira með blöðruna. Heklumenn áttu nokkur fín færi og meðal annars prjónaði Gummi Claxton sig snyrtilega í gegn en náði ekki að skora. Um miðbik fyrri hálfleiks kom svo fyrsta og eina mark hálfleiksins og það gerðu Prügelknabe IK þegar þeir höfðu verið í nokkuð öflugri sókn sem síðan endaði með því að það kom stungusending inn fyrir vörn Heklunnar sem annar senter Prügelknabe IK kláraði með sóma. Ágætt mark hjá sadó-masó gæjunum í hinu liðinu. Fyrri hálfleikur hélt áfram með látum og mikið var um miðjubarning það sem eftir lifði hálfleiksins. Einstaklega leiðinlegur dómari leiksins, sem hefur dæmt þó nokkra Hekluleikina flautaði til hálfleiks. Vel þeginn pása tekin. Seinni hálfleikur hefst á stórsókn Heklunnar sem komu mjög öflugir til leiks, enda jós bakveikur Steini skömmunum yfir menn í hálfleik. Eftir drykklanga stund af góðu spili Heklunnar kemur svo jöfnunarmarkið. Heklan fær aukaspyrnu rétt inn fyrir miðju og Hjalti býr sig undir að setja hann inn í boxið þar sem menn gerðu sig tilbúna að ráðast á boltann. Hjalti spyrnir boltanum sem lekur í gegnum alla þvöguna, framhjá markmanninum og í netið. Þetta var ekki fastasta spyrna sem Hjalti hefur tekið og mjög líklega ljótasta mark sem hann hefur skorað en mark engu að síður og Heklan búin að jafna. Leikurinn hélt áfram og nokkuð dró af Heklunni eftir jöfnunarmarkið. Prügelknabe IK komst æ meira inn í leikinn og voru farnir að liggja heldur á okkur þegar þeir skoruðu næsta mark. Undirritaður man ekki alveg hvernig það kom til enda örugglega hálfgert skítamark. Prügelknabe IK lágu áfram á okkur og uppskáru annað mark nokkuð seinna og voru þar með komnir í 1-2. Eitthvað er minnið farið að hrjá undirritaðan því mig minnir endilega að þeir hafi einnig skorað næsta mark og komist þar með í 1-3 áður en Heklan náði að minnka muninn í 2-3 með góðu marki frá (að mig minnir) Davíð. Heklumenn voru orðnir nokkuð þreyttir undir lok leiksins og þá náðu andstæðingarnir að setja inn eitt mark og leikurinn endaði þar með 2-4. Þar með var fyrsta tap Heklunnar í
10 leikjum í röð staðreynd og verður það að skrifast einvörðugu á Gauja
sem ákvað að mæta en honum hefur, eins og áður segir, gengið afskaplega
illa að sigra í Heklu treyjunni. Ágætur leikur í heildina, á móti góðu
liði en því miður var Gaui með og því fór sem fór (það skal þó tekið
fram að Gaui var gríðarlega sterkur í þessum leik. Hann var klárlega
með betri mönnum Heklunnar og spilaði eins og honum er einum lagið;
stríðsmanna-style).
Það
var fagur sunnudagsmorgun í miðjum ágústmánuði þegar fríður flokkur
drengja hélt til Silkiborgar að etja kappi við hinn fornfræga
fótboltaklúbb Alþjóðlegir. Gestirnir fóru illa af ráði sínu með færin í byrjun leiks og var refsað með marki frá heimamönum þegar Jón Ólafur ákvað að bera boltann saman við stöngina. "Klárlega ekki sami litur" sagði hann en markið gott og gilt engu að síður. Heklumenn voru þó ekki lengi að svara fyrir sig og skoraði Hjalti með skoti frá vítateigslínu eftir frábæran undirbúning Davíðs og Ella. 1-1. Því næst ákvað Tommi að vera tommaborgari og stökkva á bak fyrirliða mótherjans með þeim afleiðngum að báðir urðu að hætta leik. Inná kom apamaðurinn og skáldið frá Fagraskógi og stimplaði sig rækilega inn með góðu sjálfsmarki. 2-1. Silkislopparnir pressuðu svo stíft undir lok fyrri hálfleiks án árangurs og staðan því 2-1 í hálfleik. Stuttu seinna átti Óli stungusendingu á Hjalta sem tókst að afgreiða boltann framhjá málmanninum og Heklan komin í vænlega stöðu 3-2. Margir Heklumenn voru orðnir þreyttir á þessum tímapunkti og hófu að heimta gul kort frá undarlegum en annars erlendum dómara leiksins og fengu ósk sína uppfyllta. FC Alþjóðlegir voru þó ekki hættir og jöfnuðu leikinn með þrusara í fjærhornið. 3-3. Eftir mikla baráttu in á miðjunni var það hinn nýji leikmaður Heklunnar Dabbi sem vann boltann af harðfylgni og lagðann upp í hornið á Hjalta sem lék á einn varnarmann og setti hann stöng og inn. 4-3 og allt ætlaði um koll að keyra. Restin af leiknum einkenndist af
mikilli baráttu og vörðust Heklumenn vel beinskeyttum sóknaraðgerðum
heimamanna og uppskáru 3 mikilvæg stig.
Eftir að hafa legið í hýði yfir sumartímann og safnað brenni komu Hekludrengir til fundar við Hasle club football á Heslivöllum fullir eftivæntingar og ákefðar. Fyrir höndum var fyrsti leikur í seríu 5.1. Ekki var búist við miklum átökum af hálfu Heklumanna í leiknum enda menn með eindæmum rólegir í æfingunum í sumar og frekar stundað glasalyftingar en eitthvað annað. Í upphitun, sem átti sér stað í borgaralegum klæðnaði þar sem gjaldkerinn var aldrei þessu vant seinn fyrir með búninganna, sáust þó snilldartaktar og menn almennt heillaðir af berfættum Heklumönnum í strandbolta. Heslivalladrengir virkuðu frískir og áhugasamir, uppfullir af kebabi og falafel og hvað það nú er sem þeir borða fyrir leik. Dómarinn var, eins og oft áður, eldri en sólin og seinna kom á daginn að hann var með rólegri mönnum í Danmörku og er á engan hallað þegar því er haldið fram að heldur hafi hallað á Heslivallamenn hjá flautukonsertsólóistanum. Eftir c.a. x mínútna leik áttu Heslidrengir skot að marki og Steini, sem annars átti prýðilegan leik í markinu og var valinn maður leiksins að launum, kom engum vörnum við. Þar var að verki hin geðþekka nía heimamanna, einn af þremur leikmönnum liðsins sem ekki átti rætur að rekja til sandbarinna fjalla fyrrum Mesópótamíu. Eigi svo löngu síðar áttu Heslivalladrengir hornspyrnu á hættulegum stað. Boltinn kom fyrir en eitthvað höfðu sumir farið vitlaust fram úr um morguninn því Ingvi tók upp á því að grípa boltann. Það hefði svo sem verið í lagi ef hann hefði verið markmaður en svo var ekki og vítaspyrna var dæmd. Úr spyrnunni skoraði síðan leikmaður númer 7, gamall vopnabróðir Ingabjarnar úr Viby. Heldur fór um Heklumenn eftir þetta en þeir héldu þó út til hálfleiks. Seinni hálfleikurinn sem í hönd fór var ekkert minna en æsispennandi. Heklumenn áttu við ramman reip að draga þar sem úthaldið var heldur á undanhaldi en náðu þó að pota inn einu laufléttu og var þar að verki Seltirningurinn knái, Davíð Ingi. Kættust þá Frónverjar og lögðu allt sitt í sölurnar til að freista þess að jafna. Um miðbik seinni hálfleiks fóru síðan hlutirnir að gerast. Heslivalladrengir fengu hornspyrnu og annar leikmaður þeirra sem upprunninn var norðan Alpafjalla stillti boltanum upp í horninu og hljóp síðan inn í teig. Sá þriðji koma steðjandi að og lék boltanum úr hornspyrnunni og Heklumenn vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið, héldu því fram að ekki mætti spila úr horni. Dómarinn var á sama máli og flautaði því óbeina aukaspyrnu á Heslivalladrengi. Bjössi, sem er knár þó hann sé smár, tæklaði viðkomandi leikmann og sá var nú ekki "tilfreds" með það og reyndi að skalla Bjössa. Það var Bjössi ekki ánægður með og tók hraustlega á móti svo hinn lá eftir, ekki óvígur en fast að því. Upp úr þessu varð all nokkur rekistefna með tilheyrandi handalögmálum en dómarinn, sem var eldri en hundraðvetra, róaði menn niður og lét síðan leikinn halda áfram, án þess að nokkur spjöld færu á loft. Undir lok leiksins, þegar um 10 mínútur voru eftir, tók Ingvi rispu upp kantinn og gaf fyrir. Heldur höfðu Heklumenn verið framlágir fram að því og því töldu Heslivallamenn að ekkert þyrfti að óttast. Það átti heldur betur eftir að koma í bakið á þeim því boltinn barst til Davíðs sem hitaði sér te og rist og þrumaði síðan boltanum á markið, beint í stöng og inn. Þar við sat og úrslit leiksins 2-2. Það er ljóst að Heklumenn voru stálheppnir að tapa ekki leiknum og enn fremur ber að nefna að Steini átti stórleik í markinu og verður erfitt fyrir aðra að bola honum úr því hlutverki í framtíðinni. Á mánudeginum eftir leikinn barst síðan tölvupóstur frá Heslivalladrengjum þar sem þeir báðust afsökunar á því sem hafði gerst í leiknum og er það til eftirbreytni. Það er ljóst
að framtíðin er björt hjá Heklu, nú er framundan leikur við FC
International í Silkeborg og full ástæða til að ætla að þar geti náðst
viðunandi úrslit miðað við það sem á undan er gengið. Guðspjallið skrifaði guðspjallamaðurinn Tómas |